Vísindavefnum krefst þess að algjöru jafnræði ríki meðal föllum landinu. Í fyrirmyndarríki framtíðinni skulu öllum föllum vera frjálsum undan forsetningum, mannasetningum og kennisetningum.
Í framtíðinni verða engum þágufallssjúkum, nefnifallsveikum, þolfallssýktum eða eignarfallsstola. Öllum hafa fullum rétti ...
'Að hafa ekki grænan' er stytting á orðtakinu 'að hafa ekki grænan grun'. Merking þess er að hafa ekki hugmynd um eitthvað, að standa algjörlega á gati.
Hér er enn ósvarað af hverju grunurinn er grænn. Guðrún Kvaran segir í svari sínu við spurningunni Hvaðan kemur græni liturinn í "einum grænum hvelli"? að græ...
Öllum þeim sem búsettir eru hér á landi er skylt að skila inn skattframtali, samanber 1. tölulið 1. málsgrein 1. greinar laga númer 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt með síðari breytingum. Engu breytir hve miklar eignir menn eiga eða hvort þeir eiga eignir á annað borð. Sambúðarfólki er skylt að skila sameiginl...
Já, að vera 11 ára móðir mundi teljast mjög ungt. Meðalaldur kvenna þegar þær eignast sitt fyrsta barn er 26 ár, ef miðað er við tölur frá árinu 2005. Stúlkur verða venjulega kynþroska á aldrinum 9-18 ára, en að meðaltali gerist það ekki fyrr en við 13 ára aldurinn eins og fram kemur í svari Vísindavefsins við spu...
Stærsta dýrið í undirdjúpunum er talið vera risasmokkfiskurinn (Architeuthis dux). Margar þjóðsögur hafa spunnist um þetta dýr og stærð þess en vitað er að einstaklingar þessarar tegundar hafa náð gríðalegri stærð.
Stærsti risasmokkfiskurinn sem mældur hefur verið er dýr sem rak á land nærri Timble Tickle í Ban...
Hugtakið kynlífsfíkn er mjög umdeilt og er ekki að finna í venjulegum greiningarhandbókum geðlækna eða kynlífsfræðinga. Á seinni árum hafa myndast alls kyns fíknihugtök svo sem vinnufíkn, kynlífsfíkn, matarfíkn, íþróttafíkn og fleiri sem lýsa ákveðnu hugarástandi sem fólk telur sig kannast við. Venjulega eiga menn...
Nei, íslenska ríkið hefur ekki gert slíkt tilkall. Íslenska landhelgin er, samkvæmt 1. gr. laga nr. 41/1979 um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn, mörkuð af línu sem nær 12 sjómílur út frá svokölluðum grunnlínum. Innan grunnlínanna eru flóar og firðir landsins. Íslenska ríkið hefur fullveldisrétt yfir landhel...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona: Er mögulegt að orðið „dandalast“ sé komið frá Enrico Dandolo, sem að var blindur og reið hesti í slagtogi með krossförum til Konstantínópel?
Þegar hefur verið skrifað um sögnina að dandalast á Vísindavefnum (sjá svar saman höfundar við spurningunni Hvaðan er orðið "danda...
Tvær tegundir kondóra eru þekktar í heiminum, þær er að finna í Suður- og Norður-Ameríku. Um er að ræða kaliforníukondórinn (Gymnogyps californianus) og andeskondórinn (Vultur gryphus) en hann er sérlega stór, með 3,5 metra vænghaf og 12 kg að þyngd.
Báðar þessar tegundir eru í mikilli útrýmingarhættu. Kaliforn...
Börn tala ekki við fæðingu af því að það er ekki meðfæddur eiginleiki að kunna tungumál. Við þurfum að læra að tala en við þurfum ekki að læra að anda. Að draga andann er meðfæddur eiginleiki.
Hitt er annað mál að það að læra tungumál virðist vera manninum áskapað. Rannsóknir hafa sýnt að í vinstra heilahveli...
Gömul goðsaga hermdi að því hefði verið spáð fyrir Frýgíumönnum aftur í grárri forneskju að konung þeirra myndi bera að garði í vagni. Þeir töldu spádóminn hafa ræst þegar Gordíos nokkurn bar að garði í vagni sínum. Gordíos var umsvifalaust gerður að konungi Frýgíumanna og nafni borgarinnar breytt í Gordíon. Hann ...
Hafliði Pétur Gíslason er prófessor í tilraunaeðlisfræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands. Hann hefur rannsakað veilur í hálfleiðandi og einangrandi þéttefni (e. condensed matter) allt frá doktorsnámi sínu.
Veilur (e. defects) stjórna flestum hagnýtum eiginleikum þéttefnis, til að mynda stýra aðskotafrume...
Rastafarar líta ekki á Haile Selassie sem hálf-guð heldur sem guð að fullu, líkt og kristnir líta á Jesú sem guð en ekki hálf-guð.
Haile Selassie I (1892-1975) var keisari Eþíópíu. Hann var sonur Ras Makonnen sem var ráðgjafi Meneliks keisara II og hlaut upphaflega nafnið Tafari Makonnen. Tafari giftist barnab...
Athugasemd ritstjóra:
Þessi spurning er fram borin í ákveðnu samfélagi við tilteknar aðstæður og svarið hér á eftir miðast við það. Ýmislegt misjafnt hefur tengst vændi í samfélögum manna hingað til, ekki síst vegna ríkjandi misréttis kynjanna. Til dæmis er vændi oft rekið sem skipulögð atvinnustarfsemi þar se...
Amalie Emmy Nöther fæddist árið 1882 í gyðingafjölskyldu í Erlangen í Bæjaralandi í Þýskalandi. Faðir Emmy var stærðfræðingurinn Max Nöther en móðir hennar hét Ida Kaufmann. Hún hafði upphaflega ætlað að verða tungumálakennari, en tók síðan að nema stærðfræði sem áheyrnarnemandi hjá föður sínum við Háskólann í Erl...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!